Breytt plön
Jæja, þá er búið að panta miða til USA. EN við förum ekki 26. sept og ekki til NY, heldur 30. sept til Boston. Við byrjum á því að fara til Northampton og spila á hátíðinni, svo sjáum við til. Keyrum að öllum líkindum til NY og verðum þar í tvo-þrjá daga og reynum að spila þar og í Boston, bara spurning um í hvaða röð það verður. Hvað sem gerist, þá verður þetta alveg frábært og ég hlakka svo mikið til að ég er að spá í að henda mér í sjóinn... nei, þá hefur Dýrðin engan hljómborðsleikara....hmmm, held ég sleppi því :) Svo komum við heim 5.október. Fór með kisa til læknis áðan. Hann var með stórt graftarkýli á litla kollinum sínum ssem þurfti að raka, stina á og kreista! Hann var ekki ánægður skal ég segja ykkur. Ég hef aldrei heyrt hann gefa frá sér þvílík hljóð!!! Jæja, ég þarf að fara að sækja minn elskulega frænda í leikskólann og hafa ofanaf fyrir honum til sex. Sjáumst.
skrifað af Runa Vala
kl: 16:25
|